Færsluflokkur: Lífstíll

Haustbeit, folöld og tryppi tekin á hús

Jæja, loksins hefur maður haft tíma til að blogga. Veikindi búin að vera hér á bæ eins og kannski á fleiri heimilum Undecided

 

Sunnudaginn 10. október bað hún Helga mig um aðstoð við að fara með hrossin hennar í haustbeit uppí Stardal. Það var auðsótt mál og var ég þá snögg að biðja hana um að koma með okkur að sækja folöldin og koma þeim Væntingu og Perlu á kerru. Það þarf að byrja tamningu á þeim báðum Joyful enda orðnar stórar og þroskaðar.

 

IMG_1556

 

Á leið uppí Stardal. Tók langan tíma að fá Sneril til að standa kyrran til að taka þessa mynd, þar sem honum líkaði ekki að vera langt á eftir hinum LoL

 

IMG_1544

 

Skrýtin mynd Sideways minnir mann á fornar myndir úr Íslendingasögum Wink en þetta er frúin á Snerli !!

 

IMG_1545

 

Og Helga á Esju og teymir Sylgju og Grímu. Folöldin og Salvör hlaupa á eftir, sú gamla alveg með á hreinu hvert förinni væri heitið Smile

 

Svo var þeim hleypt beint í hausthagann þar sem önnur hross voru fyrir og tóku þeim bara vel.

 

Svo var ferðinni heitið í Rauðanes að sækja folöldin og merarnar tvær. Það myndi sko ekki veita af liðsstyrk frá Helgu til að koma Perlu á kerru Woundering enda lítið búið að ná því að spekja hana.

En svo þegar maður á von á því versta þá gengur allt eins og í lygasögu enda hafði Helga orð á því að hún hefði ekkert þurft að koma með Halo 

En allt komst þetta uppá kerru og bara æðislegt að hafa félagsskap af Helgu. Engar myndir voru teknar þar sem allir voru svo uppteknir að taka nú almennilega á þessu en svo þegar það þurfti ekki þá auðvitað gleymdist myndatakan FootinMouth

 

En hér koma svo nokkrar myndir þegar við vorum komin í bæinn

 

IMG_1557

 

Kanslari, Lýsu og Forsetason ásamt einum eigandanum Smile  bara meðfærilegur foli í alla staði svona við fyrstu kynni.

 

IMG_1566

 

Toppur Tjarnarson frekar lítill ennþá og fyndið að sami stærðarmunur er á honum og frænda hans Kanslara, eins og þegar þeir fæddust Smile

 

Ætlaði að setja inn mynd af Perlu og Væntingu en síðan vill ekki taka við henni Pinch

Farið þið nú vel með ykkur í þessari flensutíð.


Stóðréttir

Síðustu helgi brá fjölskyldan sér norður yfir heiðar í Stóðréttir í Víðidalstungu.

Það var sko öðruvísi um að litast en hér í borginni

 

Picture 053

 

Já, það var sko kallt ef maður var ekki vel klæddur Wink

 

Hér eru hrossin að koma inn í Almenninginn

 

Picture 013

 

Veðrið hafði ekki verið gott daginn áður þegar smalað var. Þá var mikil snjókoma og hvasst svo að um þriðjung hrossanna vantaði enn.

Við tókum þó nokkrar myndir af folöldunum frá Stórhól sem eru undan bræðrunum Glófaxa og Völusteini.

 

Picture 009

 

Hér er ein hryssa mjög spes á litin undan Völusteini. Fleiri myndir af folöldunum er inná linknum Glófaxi frá Kópavogi og ef ykkur líst á er um að gera að spjalla við hana Maríönnu á Stórhól og fara að versla þar sem enn eru nokkur folöld óseld.

 

Eigendur Glófaxa og Völusteins stóðust heldur ekki freistinguna við að kaupa eitt folald.  Er það merfolald undan Völusteini og Birtu frá Tjörnum. Birtu þekkjum við fjölskyldan mjög vel enda var hún í okkar eigu áður og þar sem hún eignaðist merfolald sem okkur leist á var ekkert því til fyrirstöðu að eignast hana.

 

Picture 015

 

Ekki er komið nafn á dömuna en það kemur fljótlega Wink

 

Má til með að bæta einni mynd inná líka

 

Picture 029

 

Ein greinilega að leggja áherslu á orð sín ,, Ræktunarstefnan skýr og með eldmóð í hjarta,, LoL

Greinilega kemur þessi lína einhverstaðar fram, hmmm, þó svo að þetta hafi nú ekki verið orðin sem notuð voru þarna Wink

 

Jæja þar til næst Kissing

 

 

 

 

 


Lýsa sótt á Gýgjarhól

Sunnudaginn 6. sept fórum við norður á Gýgjahól til að sækja hana Lýsu okkar sem fór undir hann Arnodd Þóroddsson frá Auðholtshjáleigu. Mjög góð aðstaða þarna hjá þeim Jóni Olgeiri og Gýgju og það tók enga stund að koma mæðginum uppá kerru.

Það er auðvitað vonast eftir leirljósu merfolaldi að ári Wink en sá sem leigði Lýsu af okkur sagði að ef hann fengi leirljóst þá færi hann heljarstökk, en ef hann fengi leirljóst merfolald þá færi hann tvöfalt heljarstökk!! Við munum auðvitað sannreyna þetta þegar nær dregur Cool

 

IMG_4606

 

Öll mertryppin að heilsa uppá Lýsu og strákinn hennar.

 

IMG_1505´

 

Skemmtilegt að sjá hvað Tjörn hefur gránað mikið í sumar og svo er eins og hún sé með ljós grátt teppi um sig miðja Tounge    kannski komist meiri sól á bumbuna hennar áður en hún átti Topp LoL

En Toppur er líka að flýta sér að grána

 

IMG_1503

 

Vænting og Perla hafa tekið að sér að vera barnapíur fyrir Tjörn og ef yngri tryppin ætla eitthvað að vesenast í honum þá eiga þau ekki von á góðu frá þessum tveimur Wink

 

IMG_4613

 

Systkinin að skokka saman Kissing

 

IMG_4626

 

Einn allt í einu að taka eftir því að mamma hans er komin langt á undan honum Grin og þá best að hraða sér.

 

IMG_4617

 

Lýsa að nota tækifærið til að renna af stað á undan hinum.

Nú fer að koma að því að taka Væntingu og Perlu inn í smá skólun. Perla þarf að trimmast aðeins til þar sem að hún er orðin virkilega feit. Það er bara örugglega gott fyrir hana svo að hún fitni nú ekki allt of mikið Shocking

Kvittið nú endilega í gestabókina eða fyrir neðan færsluna.

 

 

 

 


Laugardagur 22. Ágúst 2009

Ákveðið var að hittast í Rauðanesi 1 og koma öllum í bíla til að keyra að Valbjarnarvöllum.  Í dag átti að ríða um 35 km inn að Seljalandi í Dölum.

Sumir voru komnir fyrr og búið var að koma öllum hrossum í eitt hornið á girðingunni svo að allir gátu farið og beislað sitt hross. Sum hrossin voru þó ekkert á því að láta ná sér Pinch en þá var alltaf einhver sem bauðst til hjálpar.

Svo var ákveðið hverjir yrðu í forreið og hverjir fyrir aftan. Síðan þurfti líka að setja einhverja fyrir leiðina tilbaka þegar við byrjuðum að reka svo að hrossin myndu ekki bara renna beint heim í hagann Wink

Eins og alltaf í byrjun var búist við að hrossin yrðu mjög spræk í upphafi reksturs og voru forreiðarmenn búnir að búa sig undir það með góða hesta. En aldrei þessu vant voru þau bara mjög róleg Smile Þannig að þau lestuðu sig líka mjög fljótt.

 

Bara snilld að sjá hvað hrossin lesta sig vel.

 

 

Mynd 6

 

Sigurjón Foreman, frúin og Helgi í forreið, Bjössi tók mynd Joyful

 

 

Mynd 9

 

Langavatn, ja sko mig LoL man það bara!!!

Mynd 11

 

Svo riðum við upp einstigi meðfram Langavatni og er bara gaman að sjá hvernig hrossin lesta sig, og sérstaklega þegar maður hugsar til þess að þetta er þeim ekki kennt heldur hafa þau þetta bara í sér InLove

 

Næsta áning var að Torfhvalastöðum, sem er gangnakofi sveitamanna.

 

 

Mynd 14

 

 

Halldóra fyrir utan gangnamannakofann.

 

 

Mynd 15

 

 

Helgi, Halldóra og helvítis kallinn hann Dóri Halo

Af hverju hann heitir það, það veit ég ekki.

 

 

 

Mynd 16

 

Réttin sem hrossin hvíldust í á meðan við áðum.

 

 

Eftir góðan áningu og nestun var beislað aftur og lagt á. Hinn kallinn hann Jónas Wink ákvað að ríða með okkur síðasta áfangann að Seljalandi. Mannskapurinn náði vel saman og var mikið rætt og skrafað í rekstrinum.

Næsta áning var í fjallaskarði á milli Langavatnsdals og Laugardals þar sem allir skiptu um hross. Þar þurfti kallinn minn hann Nonni að fá lánshest sem átti að vera viðráðanlegur klár fyrir alla. Þar sem eigandinn var ekki með, en ætlaði að koma sameinast daginn eftir, voru það Helgi og helvítis kallinn hann Dóri sem vissu hver þessi klár var. Helgi fór með Nonna og benti honum á klárinn sem þeir beisluðu, ekkert mál. Svo var lagt af stað aftur og rekið niður fjallaskarðið.

Þegar við komum niður í Laugardalinn sjáum við annað stóð sem var þar fyrir. Höfðum við sem vorum á ungum hrossum dregist aðeins afturúr en í forreið voru Sigurjón og Bjössi. Þeir sem voru á eftir á sprækum hestum voru Nonni, Rakel María, Rebekka og Siggi á Seljalandi ásamt dóttur sinni.  Siggi reið fram til Sigurjóns og Bjössa og Bjössi kom tilbaka til hinna til að aðstoða, því stóðið þarna ætlaði sko að sameinast okkar. Nonni, Rakel María og Bjössi snérust í rekstrinum til að halda stóðinu í burtu. Nonni alveg alsæll með þennan barnahest sem alveg stóð fyrir sínu Wink

Allt gekk þetta vel og komum við niður að Seljalandi og settum hrossin beint í hólf á beit.

 

Mynd 18

 

 

Rakel María, Rakel Lilja og Gugga ( dóttir Guðrúnar og Dóra)

 

 

Mynd 23

 

Allir voða alvarlegir þarna, eitthvað að fara gerast Gasp  Eins gott að vera viðbúinn.

 

 

Mynd 22

 

 

Þessi var svona viðbúinn W00t

 

 

 

Þegar búið var að koma hrossum fyrir og ath alla hófa sem þyrfti að járna næsta dag var haldið í kjötsúpu hjá Seljalandsfólkinu. Þar fékk Nonni að vita að hesturinn sem hann var á var alls ekki þessi barnahestur sem hann átti að vera á, heldur var þetta hestur sem Helgi var nýbúinn að kaupa af Dóra og átti að vera vakur. Báðir hestarnir voru móálóttir og Nonni hefði sko alveg vitað það að hann tók rangan hest!! Eftir að Helgi var búinn að benda honum á þann hest sem hann átti að fara á Wink  Þvílíkir grínistar Grin

Eftir matinn var stórkostleg kvöldvaka með gítarspili og söng. Svo var dansað við góða músikk. Og svo héldu allir til hvílu á skikkanlegum tíma W00t


Hestaferð í Seljaland

Föstudaginn 21. ágúst 2009 var ákveðið að ríða inn að Seljalandi í Dölum.

Þeir sem fóru með voru: Tryggvi Lone Ranger og Nonni ( sem báðir enduðu með ný nöfn eftir þessa ferð Grin) Vera, Sigurjón Foreman, Halldóra, Bjössi, Rakel María, Rebekka, Rakel Lilja, hinn kallinn hann Jónas ( pabbi Halldóru) og frúin Wink  Síðan sameinuðust okkur á leiðinni frá Rauðanesi, Helvítis kallinn hann Dóri, konan hans hún Guðrún yndislega, dóttir þeirra Gugga, Helgi, Kristján læknir og tvær dætur hans. 

Halldóra bæði keyrði og reið hluta ferðar þar sem þau Sigurjón voru með littla krílið og þá var bara skipts á milli gjafa, bara snilld Joyful  Tryggvi Lone Ranger bílaðist með Hólmari syni sínum á laugardeginum, því þá var konudagur hjá honum, bara snilld svona verkaskipting þegar maður á svona lítil kríli.

Við lögðum af stað frá Rauðanesi um 5 leytið og var ætlunin að ríða að Valbjarnarvöllum um 27 km þetta kvöldið, geyma hrossin þar og keyra svo aftur í Rauðanes og gista þar. Við kallinn vorum með fellihýsið og Tryggvi, Vera og Co fengu að gista í notalega bústaðnum hans Afa Wink bústaðurinn heitir það.

Við ákváðum að teyma hrossin bara uppað Valbjarnarvöllum þar sem þau eru víst vön að vera erfið alltaf fyrsta spölin og vilja snúa við Tounge 

 

 

 

Mynd 1

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Gæfa, Ljóska, Rex og Náttrún á góðri ferð.

Mynd 2

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Rakel María, Nonni, Bjössi og Halldóra nýstokkin úr bílnum og eitthvað að stjórna okkur hinum stjórnlausu LoL

 

 

Mynd 3

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Rakel María og Rebekka sem sagðist líta út eins og Mongólíti með netið, að eigin sögn Cool

 

Á Valbjarnarvöllum beið hrossanna gott stykki með góðum læk. Skemmtilegt að segja frá því að ég hafði komið oft áður að Valbjarnarvöllum sem lítil stelpa með pabba og mömmu þar sem pabbi er góður vinur bóndas sem bjó þar áður og er víst bróðir bóndans sem býr þar núna Wink

Þegar við komum tilbaka í Rauðanes var hún Fjóla frænka búin að grilla þennan líka frábæra lax fyrir allan mannskapinn sem fékk sér að borða og svo var farið í háttinn.

 

 

 


Kaldármelar - Rauðanes

Ætla aðeins að bæta inn nokkrum flottum myndum af því þegar við riðum heim frá Kaldármelum Smile

 

Mynd 1

 

 

Fjóla og Bjössi í fararbroddi

 

 

Mynd 3

 

 

Fyrsta áin sem farin var yfir. Þessi leið er bara ótrúlega falleg og er alveg víst að hana á ég eftir að fara aftur Wink

 

 

Mynd 4

 

 

Svona náttúruleiðir eru bara perlur, sem á að viðhalda þannig, að alltaf sé hægt að njóta þeirra hvort sem það var fyrir 100 árum eða eftir 100 ár.

 

 

Mynd 6

 

Hlaðin rétt fyrir hrossin í einni áningunni.

 

 

Inga Lóa

 

Inga Lóa í áningu ásamt Patta sem ekki þótti leiðinlegt að hlaupa með Joyful  en þó þurfti að reiða hann dálítinn spöl undir það síðasta þar sem hann var orðinn sárfættur greyið. En svo var hann sóttur á bílnum Happy

 

 

Mynd 8

 

 

Einn alveg uppgefinn, búinn að sjá til þess að það yrði EKKERT dömufrí á ballinu um kvöldið Grin

 

 

Mynd 9

 

 

Á Grímsstöðum voru þau öðlingshjón, Þura og Trausti, búin að koma upp kaffibás með kaffibrauði sem allir voru fegnir að gæða sér á Kissing  Það er svo skemmtilegt að ferðast með svona góðum hóp þar sem allir njóta þess að vera saman. Og sumir sáu um skemmtiatriðin

 

 

Mynd 10

 

 

 

Hér er verið að sýna hann Lúkas í byggingadóm og síðan kom hæfileikasýningin alveg á eftir, með tölti, brokki og skeiði Wink

645736

Ein alveg hugfangin InLove yfir þessum frækna hestamanni sem alveg brilleraði sem Lúkas, dótturdóttir Þuru og Trausta.

Mynd 11

Svo var riðið áfram og landslagið bara skemmtilegra.

Mynd 12

Ein af mörgum áningum á leiðinni og þarna var aðeins farið að þykkna upp, en bara gott að fá smá vætu Joyful

Mynd 13

Fleiri myndir í myndaalbúminu Wink

Mæli sko með því að fólk skelli sér í reiðtúra á mýrunum, alveg ógleymanlegt.

 

 

 

 

 


Löngufjörur

Föstudagurinn 3. júlí.

Eftir vinnu vorum við búin að taka allt til svo að ekkert var annað en að renna vestur á Mýrar. Þegar þangað var komið voru sko endurfundir í lagi síðan úr sleppiferðinni LoL þar sem við höfðum ekki verið á Fimmtudagskvöldinu og hitt alla.

Þarna voru komin þau eðalhjón Þura og Trausti, Bjössi og svo auðvitað Vera og Tryggvi sem áttu 5 ára brúðkaupsafmæli Heart  Og hvar var svo betra að halda upp á það en einmitt á Fjórðungsmóti og svo á Löngufjörum Cool  Til hamingju með daginn ykkar, kæru vinir.  Fjóla og Inga Lóa gátu ekki verið á mótinu vegna vinnu, en ákváðu að ríða heim með okkur hinum á Sunnudagskvöldi.

Við skelltum upp fellihýsinu og svo voru þau Þura og Trausti skilin eftir í pössunar jobbinu Joyful En Ingó og veðurguðirnir voru að spila svo að ekki leiddist þeim á meðan Grin

639918

Þvílíkt og annað eins hafði maður sko ekki upplifað áður LoL  Hestinum þótti þetta sjálfum ekki leiðinlegt enda vel tekið á því. Og það voru örugglega fleiri þarna sem voru að fara í fyrsta sinn eins og við, því að maður sá að brosin á andlitunum breikkuðu bara meira og meira. Vá, sko núna voru sko blessuðu moldargöturnar komnar í annað sætið Joyful  Okkur var seinna sagt að þarna hefðu verið um 150 manns en fjaran bar þetta vel svo að ekki fannst manni að það væri þröngt á þingi.

639920

Jón Væni á Dásemd sem voru búin að ná saman sem eitt Wink   Glæsir húsbóndans er ekki alveg búinn að lagast af heltinni þannig að Dásemd var fengin til láns og stóð hún sig eins og hetja InLove

639914

Hittum við einnig þarna ævintýra manninn Thierry held ég að hann heiti Halo  Sá sem er búinn að vera á ferðalagi í 2-3 ár á hestbaki. Hefur fengið hesta lánaða hér og þar á þessari ferð sinni. Þarna var hann á brúnum hesti sem hann hafði fengið lánaðann í Reykjavík. Honum fannst skrýtið að fólk hefði verið tregt til að lána honum hesta, hmm er manni sama hverjum maður lánar hestinn sinn? Kannski ef maður á nóg af þeim. Hann reið á tamningamúl og tók myndir í gríð og erg. En hestinum virtist nú ekki líka ílla við hann og svo voru þeir auðvitað búnir að kynnast á leiðinni úr Reykjavík Woundering

639954

Vera alsæl á brúðkaupsafmælinu á Óðni Wink

639959

Tryggvi einnig alsæll á Ljóma sínum Cool

Núna með Ljóma og Dásemd í stóðinu, vantar bara hana Snilld LoL  Spáið í þessu ef þið riðuð þessum þremur þá væri maður bara í Alsælu alla daga Cool  Þurfti aðeins að koma þessu frá mér Halo

639957

Og Bjössi að ná því að bæta á sig smá brúnku fyrir ballið daginn eftir, því að þar yrði sko ekkert DÖMUFRÍ Cool

Sorry, Bjössi minn en þú ert nú með svo breitt bak Wink

639961

Set svo inn mynd af sólarlaginu svona í endann. Bara frábær upplifun í alla staði.

 

 


Kaldármelar 2. júlí

Fimmtudaginn 2. júlí riðu af stað úr Rauðanesi, Fjóla, Inga Lóa, Bjössi, Rebekka og Tryggvi á Kaldármela. Þar sem mörgum langaði að taka þátt í hópreiðinni sem yrði á Föstudagskvöldinu á Löngufjörum var ákveðið að þeir sem gætu myndu ríða þetta kvöld af stað.

650029

Fjóla í einu stoppinu Grin

650033

Jónas mættur upp við Múla Cool

650035

Ásamt Sigurjóni tengdasyni Wink

Okkur skyldist að hópurinn hefði verið 10 klst á leiðinn, ekki leiðinlegt það, en menn kannski orðnir þreyttir þegar þeir lögðust til hvílu á Melunum Sleeping

 

650036

 


Frumburður fæddur

Viljum óska Halldóru og Sigurjóni til hamingju með frumburðinn sem fæddist í gær þann 6. júlí Kissing

Strákurinn er 18 merkur og 55 sentimetra, bara stór Wink

Hlökkum til að sjá hann og kveðja frá okkur öllum.

Strákurinn, fæddur 06.07.09 - 18 merkur og 55cm. by Saudamadurinn

 

 

Tók mér bessaleyfi og kippti myndinni af flikrinu hjá Sigurjóni:

http://www.flickr.com/photos/21414044@N03/

Fallegur strákur alveg eins og foreldrarnir Wink

 

 


NN frá Kópavogi

Picture 304
 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Þann 19. júní 2009 leit hann dagsins ljós hann NN frá Kópavogi Kissing  rauðstjörnóttur.

 

Lýsan okkar alltaf söm við sig kastar á milli 15. - 20. júní.    Samt var maður nú búin að gera sér smá vonir að hún stæði nú með folaldið hjá sér á síðsta degi sleppitúrsins, eins og undanfarin ár, en að vísu vorum við viku fyrr á ferðinni Wink  

 

Við hefðum nú alveg viljað bruna af stað að kíkja á  strákinn en þar sem við vorum að fara með Glæsi, Sælu-Dís og Drift í hagann á laugardeginum að þá áváðum við að bíða aðeins og nýta ferðina Smile þó að það hafi nú verið erfitt. 

 

Picture 297

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Eftir að hafa komið hrossunum út úr kerrunni tókum við nokkrar myndir og rákum þau síðan í réttina.   Fínt að ná þeim núna og kíkja á hófa og gefa ormalyf.

 

 

 

Picture 306

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Komin inn í réttina og Vængting stendur hjá folsa litla Wink   Ekkert orðin smá stór hún Vænting orðin 4ra vetra. Hún verður tekin inn í haust og gerð reiðfær og einnig verður byrjað að vinna í henni Perlu líka.

 

 

Svo náðum við líka þessari flottu mynd af Tjörn og Toppi. Hefði auðvitað verið enn betri ef réttin hefði ekki verið fyrir Joyful

 

 

 

Picture 307

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Hann er svo sætur elsku litli karlinn. Alveg er ég handviss um að hann sé nú bara Snússinn okkar kominn aftur Kissing   Svo eru þau bæði alveg einstaklega róleg bæði tvö og ekkert að vera stressa sig neitt yfir hlutunum. Hann skakklappaðist stuttu eftir að myndin var tekin yfir girðinguna Grin

 

 

 

 

 

Picture 305

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Þarna læddist stráksinn okkar aftan að Toppi og klóraði honum róandi uppá lendinni sem honum virtist líka mjög vel og var ekkert að stressa sig yfir því að vera kominn frá mömmu sinni Wink en mamma fylgdist vel með þó svo að engin læti væru í henni þessari elsku.

 

 

 

 

 

 

Á meðan við vorum að sinna þeim í réttinni komu reiðhrossin og þau fáu tryppi sem eru með þeim. Þurftu sko að kanna hvað var í gangi þarna Smile

 

 

 

Picture 310

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Þarna er Gæfa frá Þorkelshóli, sú rauðskjótta 5 vetra, hin dásamlega Dásemd, grá, Ljóska frá Tunguhálsi II, leirljósi rassinn, Rán frá Útverkum, rauðtvístjörnótt og BARA 2ja vetra, svo sést í hann Munda, sem enginn mundi hvað heitir,  og svo er hann Glæsir að labba úr mynd Cool

 

 

 

 

 

Picture 311

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Það var svo gaman hjá henni Rán að það þurfti að taka hlaupa aríu út um allt LoL   Set fleiri myndir af syrpunni sem við náuðum í myndaalbúmið.

 

Set svo eina í lokin af honum NN frá Kópavogi. Vonandi verðum við komin með nafn á hann fljótlega, en það tekur smá tíma þar sem við erum 4 eigendur Wink

 

 

 

Picture 302

 

 

 

 

Bara sætur strákur InLove

 

 

 

 

 

 

 


Næsta síða »

Um bloggið

Hestasport

Höfundur

Fjölskyldan
Fjölskyldan
Áhugamálið
Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Nýjustu myndir

  • IMG_1566
  • IMG_1557
  • IMG_1545
  • IMG_1544
  • IMG_1556

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (1.5.): 3
  • Sl. sólarhring: 3
  • Sl. viku: 17
  • Frá upphafi: 585

Annað

  • Innlit í dag: 3
  • Innlit sl. viku: 17
  • Gestir í dag: 3
  • IP-tölur í dag: 3

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband