Bloggfærslur mánaðarins, nóvember 2008

Langt síðan síðast......

Ja, hérna hér, það er bara orðið langt síðan að maður hefur sest niður og bloggað Blush 

Ef mér telst rétt til væri ég alveg til í að fá 4 klst til viðbótar við sólarhringinn.

Við höfum nú verið dugleg að ríða út og og krakkarnir með. Það er alveg ómetanlegt að hafa tvo góða hesta sem hægt er að treysta fyrir gimsteinunum sínum og allir geti farið í útreiðartúr saman Wink þá er samkomulagið bara miklu betra.                                                              

                                                                                                                                               Verst að geta ekki skellt inn myndum af reiðmönnunum tveimur þar sem myrkrið skellur alltaf á svo snemma, en við erum þó heppin að hafa upplýstan reiðstíg sem hentar vel svona í fyrstu túrana á meðan verið er að koma hrossunum í form. Verð að muna eftir myndavél um helgina.

Á Sunnudaginn síðasta, átti ritarinn hér afmæli, sem væri ekki í frásögur færandi en fyrir það að ég var alveg alsæl með daginn Tounge Byrjuðum á því að fara og ná í hey til Ingu og Simma og tókum auðvitað myndir af litla stóðinu okkar sem kom hlaupandi til okkar um leið og þær glittu í okkur 

IMG_3022

Þær eru enn í góðum holdum enda kafbeit ennþá þarna.

Svo er ein góð af henni Rán

IMG_3023

Og svo þær Tjörn og Vænting

IMG_3029

Og síðast hún Lýsa sem er að byrja að fara í vetrarbúning

IMG_3026

 

Svo lögðum við af stað í bæinn og brunuðum uppí hesthús. Þegar þangað var komið var þá ekki hún Jóhanna Kristín http://www.123.is/vedratta/page/11621/ komin með fylgdarliði með meiru Wink enda að taka inn þá félaga Gutta frá Ásgarði og hann Safír. Þeim var bara dengt út í gerði og svo restin úr húsinu okkar. Engin læti í þeim félögum enda mjög kurteisir og vel upp aldnir og féllu bara vel inní hópinn hjá hinum Smile 

Svo var að koma rúllunum inn og brettu þá allir upp ermar og komust rúllurnar bara fljótt og vel inn enda ekki erfitt verk þegar margar hendur hjálpast að.  Við fórum svo að moka og gefa og Jóhanna fór að skila hestakerunni og kom svo tilbaka. Við notuðum þá tækifærið til að bjóða henni á hestbak með okkur svona til að koma henni í gírinn enda ekki búið að járna hjá henni. Heimasætan fór á Þránni, húsbóndinn á Glæsi sínum, húsfreyjan á Rexinum og Jóhanna á Nökkva. Bara flott útreiðarveður og klárarnir frískir. Svo var sett inn og hlustað á besta og flottasta hljóð í heimi sem er þegar hrossin maula tugguna. Svo var drifið í heimförina enda ætlunin að elda góðan mat og slappa svo vel af Joyful

Mig langar líka til að benda ykkur hér á flott og hreyfingafalleg folöld sem eru til sölu hjá henni Maríönnu á Stórhól :       http://album.123.is/?aid=120492

Um að gera að fara í gegn um albúmið þar sem skrifað er við myndirnar undan hverjum folöldin eru og svo hvort þau eru seld eða ekki.

 

 

Setningarnar hérna fyrir ofan eru alveg út og suður!! Vonandi að þetta lagist en bless þar til næst Wizard


Girðingavinna

Síðastliðinn laugardag fórum við fjölskyldan til Ingu og Simma til að fara yfir girðingar þar sem við ætluðum að setja Lýsu og hryssurnar í stærra stykki. Við komum þangað um hádegið og byrjuðum að fara af stað með Ingu á traktornum á undan okkur. Alltaf notalegt að koma þarna í elskulegheitin hjá þeim hjónum Wink

Það þurfti að setja niður einn hornstaur sem Simmi kom með og var það auðvelt með traktornum. Svo var bara að ganga meðfram girðingunni. Krakkarnir fengu nú alveg víðáttubrjálæði og ruku niður í fjöru að leika og urðum við ekki vör við þau langa stund. Þarna munu hrossin okkar vera næsta sumar og hafa það gott. Alveg kafbeit og stór tjörn sem ekki þornaði í mestu þurrkunum í sumar. En svo er þarna líka drykkjarskál sem hægt er að tengja inn á vatnslögnina ef ske kynni að allt þornaði upp. Við dunduðum okkur þarna mest allan daginn og komum svo inn í kaffi á eftir. Skemmtilegt að vera svona í útivinnu og með duglegum krökkum sem alltaf gátu hjálpað eitthvað Whistling

Áður en við fórum inn í kaffi ákváðum við að taka nokkrar myndir af merunum ;o) á meðan birtan var.IMG_2809 Perla mín komin uppá einn af hraundröngunum sem koma til með að mynda gott skjól í vetur.    

                                                                                                   Vænting                                                                                                           Og Vænting ekki langt frá henni þar sem þær voru ekki alveg búnar að samlagast hinum sem höfðu komið hálfum mánuði áður.

Sáum við þær ekki alveg strax en þegar við gerðum það var alveg eins og þær hefðu stillt sér upp í fjölskyldumyndatöku Joyful                                                                                                                        Lísa og skvísurnar Fremst liggur Tjörn, brún/grá, Lýsu-og Töfradóttir( Selfossi), fyrir ofan hana Rán, rauðtvístjörnótt, Lukku-og Karradóttir(Neðra-Seli), við hliðina á henni er Gná, jarpvindótta, Deplu-og Trymbilsdóttir(Akurey 1), Gríma, moldótta, kíkir yfir bakið á Gná Wink, Gríma er Gyðju-og Trymbilsdóttir, Silfra, móvindótta, Drottningar-og Brekadóttir( Brúarreykjum), aftast er svo Lýsa okkar, leirljósa, Lóu-Blesu-og Asadóttir(Brimnesi).   Fallegt faxið á þeim vindóttu, algjörar ljóskur.                                                                                                                                                                                                                         IMG_2826 Silfra                                                                        IMG_2828  Gná.                                                                              IMG_2827    Gríma með grímuna yfir augun og Rán við hliðina á henni. IMG_2829    Og krúttið hún Tjörn, sem virtist vera alveg nývöknuð, hehhe.    Eftir kaffið fórum við aftur út og hleyptum þeim yfir í hitt stykkið. Vá hvað þær voru ánægðar Joyful  þær héldu að nú væru þær gjörsamlega frjálsar og hlupu alveg eins og vitlausar niður allt túnið. Við drifum okkur í bæinn og byrjuðum á hesthúsinu að hleypa út liðinu þar. Erum komin með 7 hross inn og bíðum enn eftir einu henni Gæfu sem er að koma að norðan beint út tamningu. Það verður gaman að kynnast henni aftur og fara í útreiðatúra. Svo bíðum við bara eftir að leigjandinn komi nú inn með sín 2 hross og þá verðum við komin með fullt hús Smile   Hafið það sem allra best og vonandi fýkur nú ekki allt í burtu hjá ykkur í þessum ægilega vindi sem er búinn að blása í allt kvöld Errm


Hrossafluttningar

Svona inná milli sem ég kynni hrossin okkar var ég að hugsa um að setja inn hér atburði í lífi okkar fjölskyldunnar.

Síðasta mánuð höfum við hjónin verið dugleg í hrossafluttningum. Og er þetta búið að vera svo mikil keyrsla með kerrur aftan í bílnum okkar að kallinn er farinn að segja að um leið og hann setjist uppí bílinn okkar þá haldi hann að kerra sé aftan í bílnum og keyri í samræmi við það. Skilur svo ekkert í að aðrir flauti á hann óspart þegar hann tekur borgarstjórabeygjurnar með enga kerru í eftirdragi!!!Við vorum svo heppin að hafa fundið stað þar sem við getum haft öll okkar hross á sama stað. Þar sem við höfum keypt heyið okkar undanfarin ár, voru þau svo elskuleg hjónin Inga og Simmi að geta tekið við okkur.  

Jæja, fluttningarnir í haust hófust á því að þegar að bræðurnir Glófaxi og Völusteinn voru búnir að vera í viku inni hjá okkur í hesthúsinu í smá re-orientation ( svona Stellu í orlofi námskeiði) þá keyrðum við Glófaxa í tamningu við Akranes og Völustein í Ásgarðinn til Ransýjar. Ég var nú ekki að hafa fyrir því að segja Ransýju að við værum á hraðferð þar sem við vorum líka á leiðinni austur að sækja litlu trippin. En þessi elska var búin að hella uppá kaffi og baka vöfflur fyrir stórfjölskylduna og þurftum við þá að taka þetta inn seinna Blush Fyrigefðu Ransý mín, ég veit að þú vildir alveg sýna okkur hvað fjarstýringarnar þínar virkuðu vel á heimilistækin og hvað Busla og Súsý voru orðnar duglegar að framreiða W00t  Ég bara næ þessu ekki hjá henni Ransý hvað hún er dugleg í þessu öllu saman.  Hún þyrfti sko að halda námskeið fyrir okkur hinar Kissing

Jæja og við austur að sækja Lýsu, Þrá og mertryppin 5. Fengum við vin okkar til að aðstoða okkur á sínum fína fluttningabíl til að taka þessar 7. Þrá og Lýsa búin að hafa það gott í Kaldárholti í stykkinu hennar Lilju, www.hrossasott.com  Bara feitar og fínar þessar elskulegu maddömur okkarInLove  og löbbuðu bara fínt uppá bílinn. Svo fórum við í Kastalabrekku að sækja tryppin, Tjörn, Rán, Grímu, Silfru og Gná. Bara fín og góð aðstaða þarna. Það var búið að smala um morguninn og biðu þær eftir okkur í einni stíunni. Þær voru líka feitar og pattaralegar eftir sumarið og vel hugsað um þær. Svo var bara að kanna hvort þær myndu eftir því að þær væru band- og kerruvanar. Ekki málið, bara flottar þessar elskulegu dömur. Við vorum með þær inni í hesthúsinu í viku til að skerpa aðeins á Stellu aðferðinni, sem virðist hafa dugað vel hingað til Wink 

18.10. 2008.

Við keyrðum Lýsu, og mertryppin 5 til Ingu og Simma í stykkið. Þar voru þau hjónin búin að girða minna stykki þar sem við settum þær inn þar sem við áttum eftir að koma með 2-3 önnur sem eiga að ganga úti í vetur.  Svo héldum við áfram norður til að sækja 3 önnur sem höfðu verið úti. Við komum í Litluhlíð til Mörtu og Adda um kvöldið. Snemma næsta morgun fórum við að reyna að ná í Mána gamla, hestinn hans pabba. Hann var uppi í fjalli með stóðinu. Hann var auðvitað taminn og átti bara vera hægt að ganga að honum og mýla. Jæja, Addi var komin til hans, búinn að gefa honum brauð og alles og ætlaði svo að koma múlnum á. En, NEI, hann man víst ekki eftir Stellu í orlofi uppeldinu!!! Andskotans!! Þetta kostaði 3 klst í eltingaleik fram og til baka uppí í fjalli!! Og þið vitið að við sem erum sko ekki með ballet-fíguru eða limaburð þá getur þetta sko orðið ansi ÓFYNDIÐ Angry  EN að lokum tókst þetta, allt Adda að þakka. Máni kominn í aðhald í gerði Ha, hvað, gerði ég eitthvað???                                               Svo var að ná í Væntingu. Bara ekkert mál að mýla hana, hún mundi sko eftir Stellu Wink hehhe. Svo var bara að labba með hana niður í hesthús til Mána. Ja, sko þá fékk ég að muna eftir því að við hlaupum sko ekki eins hratt og hestar, því Vænting ætlaði sko bara að hlaupa þangað með MIG í eftirdragi. ANDSKOTINN sko hún Stella var sko ekki að virka, svo að við hringsóluðum niður í rétt og líðanin á frúnni var sko eins og hún hefði teygað 7 skot af von Baron appelcorn !!!! Og svo uppá kerru með þetta fja....s lið. Svo flýttum við okkur að þakka fyrir okkur hjá húsráðendum Kissing til að ná í bæinn um kvöldið. Svo var brunað af stað á Tjarnir þar sem við þurftum að sækja Perlu litlu. En Perla var bara orðin rosa stórt tveggja vetra trippi og bara ekkert búið að eiga við hana. Við auðvitað beittum Stellu óspart og tókst í lokin að mýla hana og binda svo utan á taminn hest og svo uppá kerru. Þökkum kærlega fyrir okkur Kjartan og Sigurlaug Kissing alltaf gaman að koma til ykkar. Nú svo var lagt í´ann suður heiðar. Bara brjálað veður eða þannig mín skíthrædd í bíl þegar rok er og smá hálka. En elsku kallinn minn rosa góður bílstjóri og NÚNA með KERRU aftan í bílnum Halo  bara algjör snilli.

Ætlunin var að hafa þessi 3 inni með Þrá og setja þau svo aftur út hjá Ingu og Simma. En Máni kom svo vel út úr skoðuninni hjá Björgvini dýral að hann verður áfram inni í vetur til brúkunar. Ég ætlaði sko að nota Stellu vel á Perlu svo að hún yrði nú bandvön áður en hún færi út ásamt Væntingu til hinna hryssnanna. Vikan varð nú samt að tveimur þar sem Perla var nú ekki alveg að gefa sig. En þegar leynivopnið hann Ármann Stínumaður mætti á staðinn Leynivopnið ;o)og teymdi Perlu tvisvar að þá gaf hún sig.      Enda Stella búin að hreiðra um sig og svo mætti Ármann með sitt leynivopn og allt small saman. Perla bara orðin TAMIN InLove  LoL                                                                                                                                          

31.10. 2008

Í dag keyrðum við svo Perlu og Væntingu í stykkið hjá hinum 6 hryssunum. Vænting og PerlaÆðislegt að sjá svona marga liti saman komna. Leirljóst, brúnt/grátt, rauðtvístjörnótt, moldótt, móvindótt, jarpvindótt, rauðskjótt og gráskjótt. Svo gæti nú Lýsa komið með moldótt á næsta ári þar sem hún er með fyl undan Forseta.   

Enn héldum við áfram að sækja reiðhrossin austur fyrir fjall á Baugsstaði hjá Gumma, bróður Lilju, og Sjöfn konu hans. Þarna voru þeir fjórir, Glæsir, Rex, Tangó og Nökkvi. Við ákváðum að taka Tangó og Nökkva í fyrsta holli í tveggja hesta kerrunni þar sem þeir gætu reynst erfiðari en hinir. Ekki málið að ná þeim tveimur og beint uppá kerru Wink  Brunað í bæinn og inní hesthús með þá og svo austur aftur að sækja hina tvo. Urrr afhverju láta tamdir hestar svona, ekki bara þeir heldur Máni líka fyrir norðan. Jújú við náðum þeim alveg en báðir ákváðu þeir að þeir ætluðu BARA með framfæturnar uppá kerru!!!! Jæja loksins tókst þetta og brunað í bæinn með þá líka. Svo áttum við bara eftir að sækja Svörtu-Spörtu uppí Stardal. Hringdum í Helgu Skowronski http://www.123.is/helgadalshestar/default.aspx?page=blog og spurðum hvort hún vildi bara ekki nýta sér ferðina hjá okkur og ná í sína hesta líka fyrst við værum með kerru hvort sem er. Jújú ekki málið og hún bara, þessi elska, kom labbandi á móti okkur vafin í neonkaðli eins og lítið jólatré og með brauðpokana dinglandi utan á sér, svo að við sæjum hana nú áræðanlega í myrkrinu!!!! Svo að við ákváðum að reyna að snúa við á þessu smá plássi. Helga kemur hressileg inní bíl og segir að það sé ekkert mál að snúa hér við því stórar rútur geri það ALLTAF. Ég búin að bjóðast til að fara út og opna hlið þarna til að fá meira pláss á veginum, en NEI, þarna VARÐ kallinn að snúa við hvað sem tautaði og raulaði Blush  Svo héldum við áfram. Fórum úr bílnum við Stardal, settum upp kaðalinn góða, og kölluðum í hrossin í myrkri og þoku. Og hvað haldiði??? Þessar elskur InLove  Snerill fyrstur, svo Gríma og svo Svarta-Sparta komu bara hlaupandi og við mýldum þau. Uppá kerru með Sneril og Grímu og ég beið með Svörtuna mína á meðan þau fóru fóru uppí Helgadal. Svo kom kallinn til baka og Svartan uppá kerru eins og hún hafi ekkert annað gert um æfina. verslunarmannahelgin ´08 161               Við brunuðum uppí hesthús þar sem öll hersingin var fegin að fá kvöldgjöfina og vera inni í slagviðrinu Wink  Knús til ykkar IMG_1067


Um bloggið

Hestasport

Höfundur

Fjölskyldan
Fjölskyldan
Áhugamálið
Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Nýjustu myndir

  • IMG_1566
  • IMG_1557
  • IMG_1545
  • IMG_1544
  • IMG_1556

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (2.5.): 0
  • Sl. sólarhring: 3
  • Sl. viku: 17
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 17
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband