NN frá Kópavogi

Picture 304
 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Þann 19. júní 2009 leit hann dagsins ljós hann NN frá Kópavogi Kissing  rauðstjörnóttur.

 

Lýsan okkar alltaf söm við sig kastar á milli 15. - 20. júní.    Samt var maður nú búin að gera sér smá vonir að hún stæði nú með folaldið hjá sér á síðsta degi sleppitúrsins, eins og undanfarin ár, en að vísu vorum við viku fyrr á ferðinni Wink  

 

Við hefðum nú alveg viljað bruna af stað að kíkja á  strákinn en þar sem við vorum að fara með Glæsi, Sælu-Dís og Drift í hagann á laugardeginum að þá áváðum við að bíða aðeins og nýta ferðina Smile þó að það hafi nú verið erfitt. 

 

Picture 297

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Eftir að hafa komið hrossunum út úr kerrunni tókum við nokkrar myndir og rákum þau síðan í réttina.   Fínt að ná þeim núna og kíkja á hófa og gefa ormalyf.

 

 

 

Picture 306

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Komin inn í réttina og Vængting stendur hjá folsa litla Wink   Ekkert orðin smá stór hún Vænting orðin 4ra vetra. Hún verður tekin inn í haust og gerð reiðfær og einnig verður byrjað að vinna í henni Perlu líka.

 

 

Svo náðum við líka þessari flottu mynd af Tjörn og Toppi. Hefði auðvitað verið enn betri ef réttin hefði ekki verið fyrir Joyful

 

 

 

Picture 307

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Hann er svo sætur elsku litli karlinn. Alveg er ég handviss um að hann sé nú bara Snússinn okkar kominn aftur Kissing   Svo eru þau bæði alveg einstaklega róleg bæði tvö og ekkert að vera stressa sig neitt yfir hlutunum. Hann skakklappaðist stuttu eftir að myndin var tekin yfir girðinguna Grin

 

 

 

 

 

Picture 305

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Þarna læddist stráksinn okkar aftan að Toppi og klóraði honum róandi uppá lendinni sem honum virtist líka mjög vel og var ekkert að stressa sig yfir því að vera kominn frá mömmu sinni Wink en mamma fylgdist vel með þó svo að engin læti væru í henni þessari elsku.

 

 

 

 

 

 

Á meðan við vorum að sinna þeim í réttinni komu reiðhrossin og þau fáu tryppi sem eru með þeim. Þurftu sko að kanna hvað var í gangi þarna Smile

 

 

 

Picture 310

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Þarna er Gæfa frá Þorkelshóli, sú rauðskjótta 5 vetra, hin dásamlega Dásemd, grá, Ljóska frá Tunguhálsi II, leirljósi rassinn, Rán frá Útverkum, rauðtvístjörnótt og BARA 2ja vetra, svo sést í hann Munda, sem enginn mundi hvað heitir,  og svo er hann Glæsir að labba úr mynd Cool

 

 

 

 

 

Picture 311

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Það var svo gaman hjá henni Rán að það þurfti að taka hlaupa aríu út um allt LoL   Set fleiri myndir af syrpunni sem við náuðum í myndaalbúmið.

 

Set svo eina í lokin af honum NN frá Kópavogi. Vonandi verðum við komin með nafn á hann fljótlega, en það tekur smá tíma þar sem við erum 4 eigendur Wink

 

 

 

Picture 302

 

 

 

 

Bara sætur strákur InLove

 

 

 

 

 

 

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Hestasport

Höfundur

Fjölskyldan
Fjölskyldan
Áhugamálið
Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Nýjustu myndir

  • IMG_1566
  • IMG_1557
  • IMG_1545
  • IMG_1544
  • IMG_1556

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (2.5.): 1
  • Sl. sólarhring: 4
  • Sl. viku: 18
  • Frá upphafi: 586

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 18
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband