Er ekki alltaf hægt að bæta við sig blómum ;o)

Já hver segir alltaf þessa skemmtilegu setningu Cool ætla ekki að viðhafa fleiri orð um það en viðkomandi má alveg gefa sig fram LoL

Það hefur jú bætst við hrossafjöldann hjá okkur og það jú alveg óvart Halo

Mér bauðst að kaupa hryssu, fædda í fyrra, í uppáhaldslitnum mínum og eftir að hafa séð hana gat ég ekki sagt nei InLove

 

 

 

Sæla

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Hún heitir Sæladís og er frá Ásgarði. Hún er undan Hróksdótturinni Sokkudís og Stálasyninum Stæl frá Neðra-Seli. Stæll er með byggingaeinkun uppá 8.28.

Svo er Stæll undan Spætu frá Hólum og FF hennar er Asi frá Brimnesi sem Lýsan okkar er undan Smile og móðir Spætu er Kría frá Lækjarmóti sem hann Karri frá Neðra-Seli er undan, pabbi hennar Ránar okkar Wink Hehhehe heimurinn getur líka verið lítill í hestaheiminum. Bara smá flókið.

 

Síðan var ég að auglýsa mertryppi fyrir vinkonu mína fyrir norðan, en þegar myndir bárust af þessu mertryppi þá var var ákveðið að eignast það í sameiningu við afa og ömmu Wink

 

Drift Kopie_1

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Hún heitir Drift frá Litluhlíð og er undan Jörp frá Litluhlíð og Adamssyninum Stíg frá Tunguhálsi II og fékk hann 7.8 fyrir byggingu.

Erum við inni með þær tvær núna og er ætlunin að bandvenja þær áður en við sleppum þeim í hagann til Lýsu og hinna.   Tókum nokkrar myndir af þeim í dag.

 

 

Tvær samrýmdar

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Alltaf eins og límdar hvor við aðra Joyful

 

Smá mont

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Drift fer um á þessu líka flotta og svífandi brokki.

Sæladís er öll í töltinu og tekur brokkið svona spari Grin

 

Þetta er nú ekki búið enn, því við erum búin að missa töluvert af reiðhrossum sl tvö ár, okkur vantaði eitt í viðbót svo að maður kæmist nú í sleppitúr. Við ákváðum að falast eftir henni Ljósku, systur Lýsu okkar, sem við þekkjum svo vel eftir að hafa fengið hana lánaða einu sinni og riðið henni svo oft í göngum. Var það auðsótt mál og sameinast hún því reiðhrossum okkar. Hún er 15 vetra núna í vor og er hörkureiðhross, gott að fá fullorðið hross til að styðja yngri reiðhrossin okkar sem ekki eru enn fullmótuð.

Ljóskan og Drift

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Nú held ég að það sé komið að því að við hættum í bili að bæta við okkur blómum Cool

Nú er bara að bíða eftir að Tjörn okkar kasti og hún Lýsa líka.  Ætlunin er að fara í hagann þar sem Lýsa er um helgina og setja hana og tvær aðrar í sér hólf þar sem hún getur kastað í friði.

Næsta fimmtudagskvöld erum við að leggja af stað í sleppitúrinn okkar. Hrossin hjá okkur eru í mjög góðri þjálfun en þó er hann Glæsir húsbóndans búinn að vera haltur og vonum við bara að hann verði búinn að jafna sig áður en við höldum af stað.

Jæja, bið að heilsa ykkur öllum þarna úti og farið nú vel með ykkur og kvittið endilega í gestabókina, eða kommentið þvi gaman er að vita hverjir kíkja hérna inn Wink

 

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Flottar nýju hryssurnar ykkar.... sko þetta er mjög einfalt... það þarf að selja hross og þá þarf auðvitað að kaupa þau..... og ég og þú erum greyinilega góðar í því að kaupa það sem þarf að selja ;-). Svo er bara að krossa fingur með hana Tjörn litlu, úff púff þetta er eiginlega eins og 12 ára stelpa væri ólétt..... og svo kemur Lýsa með moldótta hryssu en ekki hvað????

Lilja (IP-tala skráð) 30.5.2009 kl. 20:39

2 Smámynd: Fjölskyldan

Heheheheh já einmitt það sem ég vildi sagt hafa

Já maður vonar það besta með hana Tjörn og að þetta fari nú vel. Dýri ekki alveg nógu nákvæmur á tímann.

Já, endilega moldótta hryssu, en karlinn segir að það komi jörp hryssa!!! Ég vona bara að það verði hryssa

Fjölskyldan, 31.5.2009 kl. 11:16

3 identicon

Great to see new pictures of my "daughter". Congratulations to all these beauties!!!

Sabine (IP-tala skráð) 1.6.2009 kl. 12:35

4 identicon

haha ekkert surprise við þetta.. þú ert alveg veik fyrir sætum hryssum :) Þú endar sem hrossabóndi norður í landi með þessu áframhaldi! Til lukku með þær.. eru reglulega sætar!

Við krossum líka putta fyrir Tjörnina!

Kv. Kolla og co

Kolla (IP-tala skráð) 2.6.2009 kl. 22:19

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Hestasport

Höfundur

Fjölskyldan
Fjölskyldan
Áhugamálið
Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Nýjustu myndir

  • IMG_1566
  • IMG_1557
  • IMG_1545
  • IMG_1544
  • IMG_1556

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (17.5.): 0
  • Sl. sólarhring: 3
  • Sl. viku: 15
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 15
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband