Fullt af fréttum ;o)

Jahá, maður hefur ekki verið duglegasti bloggarinn undanfarið Blush  enda nóg að gera á stóru heimili.

 

 Þá eru það helstu fréttirnar frá því síðast:

 

Í byrjun apríl fórum við sem oft áður að sækja heyrúllur fyrir hrossin okkar. Notuðum við tækifærið og skoðuðum litla stóðið okkar í leiðinni. Komu þær allar til okkar nema ein. Það var hún Tjörn okkar Töfradóttir frá Selfossi. Stóð hún bara og horfði dreyminn út fjörðinn og sýndi okkur enga athygli. Það fannst okkur alls ekki nógu gott og fórum að skoða hana nánar. Það varð úr að við ákváðum að fara með hana til Björgvins dýralæknis í bænum.

 

IMG_1227

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Ekki tókst okkur að fá strax tíma hjá honum en Lilja vinkona í Gusti var okkur góð og reddaði plássi fyrir hana þá vikuna. Eftir skoðunina staðhæfði Björgvin að hún væri fylfull þannig að nú eigum við von á öðru folaldi, soldið óvænt en vonandi fer allt vel.

 

 

IMG_1271

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Þar sem fylgjast þarf með henni bauðst Helga vinkona til að taka hana til sín og fylgjast með henni. Í tenglunum hér á síðunni er hægt að fara inná síðu Helgu. Skemmtilegt blogg þar og eru þrjár hryssur af fjórum búin að kasta flottum folöldum. Nú bíður maður bara í start holunum að fara taka myndir af Tjörn og folaldi.

 

 

 

 

 

 

Næst var það að hún Þrá okkar gamla heltist í vetur og verður ekki notuð meira til reiðar Frown og þar með missir heimasætan af sínum aðalreiðhesti. Við fórum með hana út í byrjun mai til Lýsu og hinna tryppanna. Gef henni sumarið og sjáum við svo til hvernig hún kemur undan sumri og hvort hún geti gengið úti einn vetur.

 

IMG_1109

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Svona hryssur þyrftu sko allir að eiga. Ég lærði mikið af henni og svo einnig börnin mín og aðrir fjölskyldumeðlimir sem kynntust sinni hestamennsku í gegn um hana. Þæg, traust og hélt vel áfram og hver sem er gat stjórnað henni. Þrá var mitt fyrsta hross og á alveg sérstaklega mikið í mér.

 

Verst að hafa ekki getað fengið annað folald undan henni þar sem hún reyndist vera geld en eitt fengum við þó og það var hann Snússi okkar sem ég hef bloggað um áður.

 

Hann Völusteinn annar stóðhesturinn í eigu fjölskyldunnar er kominn í hesthúsahverfið hjá okkur. Var ákveðið að byrja aðeins að frumtemja hann áður en hann fer norður í merar.

 

Tamningarmaðurinn er mjög ánægður með hann, áhugasamur og allur gangur laus. Á eftir að setja myndir og fréttir af honum á Glófaxa síðuna Wink

 

Svo fer að koma að því að hún Lýsa okkar kasti fylinu undan Forseta frá Vorsabæ, hlökkum bara til.

 

Ég ætla að geyma síðustu fréttina fyrir næsta blogg en óvænt bættist við tryppatöluna Wink hjá fjölskyldunni. En segi betur frá því í næsta bloggi og myndir með Cool

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Mikið var! hehe! Flott að það kom loksins blogg frá ykkur. Ég vona að Tjörn ykkar gangi vel á lokasprettinum. Leitt að heyra með Þrá, ég veit sjálf hvað það er erfitt að missa svona uppáhalds hesta.

Ég hlakka til að sjá næstu færslu.. hvað voruð þið núna að kaupa! hehe

Kolla (IP-tala skráð) 27.5.2009 kl. 22:15

2 Smámynd: Fjölskyldan

Já mikið var að maður komst í gang aftur

Já það er von að þú spyrjir hvað við vorum að kaupa  þetta ruglaða fólk hérna má ekki sjá eitthvað krúttlegt og þá bara er maður komin í hann krappann

Fjölskyldan, 28.5.2009 kl. 23:01

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Hestasport

Höfundur

Fjölskyldan
Fjölskyldan
Áhugamálið
Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Nýjustu myndir

  • IMG_1566
  • IMG_1557
  • IMG_1545
  • IMG_1544
  • IMG_1556

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (17.5.): 0
  • Sl. sólarhring: 3
  • Sl. viku: 15
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 15
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband