Færsluflokkur: Lífstíll
9.12.2008 | 23:45
Dagur í heshúsinu
Fórum með krakkana í hesthúsið einn sunnudaginn. Það var ágætisveður en rosalega kalt þannig að reiðtúrinn varð bara stuttur
Húsbóndinn ákvað að þrífa hesthúsið á meðan frúin og krakkarnir skelltu sér á bak. Náðum nú ekki góðum myndum en ætla að setja samt eina inn af okkur í reið og svo eina af systkinunum sem voru bara samtaka á klárunum
Strákurinn á Nökkva og stelpan á Þránni. Nökkvi er að verða 12 vetra í vor, eins og strákurinn og Þráin verður 23 í vor og bara enn spræk með krakkana
Hér er svo mynd af okkur þremur
Náðum svo betri myndum inni í gerðinu þegar við komum til baka. Þegar við náum góðum myndum af þeim kem ég til með að setja fleiri inn.
Flottur hálfmáni á Þránni.
Var að reyna að ná góðri andlitsmynd af henni en gékk ekki, kemur á óvart, ha?
Svo er það hann Tangó Mózartsson.
Hann er fyrsta folaldið sem við fengum með Lýsu okkar. Hann er 4ra vetra og er aðeins búið að eiga við hann og verður svo haldið áfram með hann í vetur. Allur gangur laus.
Hér er svo hann Nökkvi sem við keyptum sl vor. Ástæðan fyrir kaupunum var að þegar Snússinn okkar var felldur sl haust, var ekki hestur til fyrir strákinn. Ekki var nú auðvelt að fylla skarð Snússa en hann Nökkvi er alger öðlingur, og soldill sérvitringur en honum og stráksa semur mjög vel. Annars getur hver sem er riðið Nökkva, þó hann sé klárgengur mjög, og brokkar nær eingöngu. En brokkið er mjúkt og fer vel með mann, en ég hef þó náð nokkrum töltsporum úr honum og sér maður til hvort það verður haldið áfram með það
Lífstíll | Breytt s.d. kl. 23:50 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
27.11.2008 | 23:10
Langt síðan síðast......
Ja, hérna hér, það er bara orðið langt síðan að maður hefur sest niður og bloggað
Ef mér telst rétt til væri ég alveg til í að fá 4 klst til viðbótar við sólarhringinn.
Við höfum nú verið dugleg að ríða út og og krakkarnir með. Það er alveg ómetanlegt að hafa tvo góða hesta sem hægt er að treysta fyrir gimsteinunum sínum og allir geti farið í útreiðartúr saman þá er samkomulagið bara miklu betra.
Verst að geta ekki skellt inn myndum af reiðmönnunum tveimur þar sem myrkrið skellur alltaf á svo snemma, en við erum þó heppin að hafa upplýstan reiðstíg sem hentar vel svona í fyrstu túrana á meðan verið er að koma hrossunum í form. Verð að muna eftir myndavél um helgina.
Á Sunnudaginn síðasta, átti ritarinn hér afmæli, sem væri ekki í frásögur færandi en fyrir það að ég var alveg alsæl með daginn Byrjuðum á því að fara og ná í hey til Ingu og Simma og tókum auðvitað myndir af litla stóðinu okkar sem kom hlaupandi til okkar um leið og þær glittu í okkur
Þær eru enn í góðum holdum enda kafbeit ennþá þarna.
Svo er ein góð af henni Rán
Og svo þær Tjörn og Vænting
Og síðast hún Lýsa sem er að byrja að fara í vetrarbúning
Svo lögðum við af stað í bæinn og brunuðum uppí hesthús. Þegar þangað var komið var þá ekki hún Jóhanna Kristín http://www.123.is/vedratta/page/11621/ komin með fylgdarliði með meiru enda að taka inn þá félaga Gutta frá Ásgarði og hann Safír. Þeim var bara dengt út í gerði og svo restin úr húsinu okkar. Engin læti í þeim félögum enda mjög kurteisir og vel upp aldnir og féllu bara vel inní hópinn hjá hinum
Svo var að koma rúllunum inn og brettu þá allir upp ermar og komust rúllurnar bara fljótt og vel inn enda ekki erfitt verk þegar margar hendur hjálpast að. Við fórum svo að moka og gefa og Jóhanna fór að skila hestakerunni og kom svo tilbaka. Við notuðum þá tækifærið til að bjóða henni á hestbak með okkur svona til að koma henni í gírinn enda ekki búið að járna hjá henni. Heimasætan fór á Þránni, húsbóndinn á Glæsi sínum, húsfreyjan á Rexinum og Jóhanna á Nökkva. Bara flott útreiðarveður og klárarnir frískir. Svo var sett inn og hlustað á besta og flottasta hljóð í heimi sem er þegar hrossin maula tugguna. Svo var drifið í heimförina enda ætlunin að elda góðan mat og slappa svo vel af
Mig langar líka til að benda ykkur hér á flott og hreyfingafalleg folöld sem eru til sölu hjá henni Maríönnu á Stórhól : http://album.123.is/?aid=120492
Um að gera að fara í gegn um albúmið þar sem skrifað er við myndirnar undan hverjum folöldin eru og svo hvort þau eru seld eða ekki.
Setningarnar hérna fyrir ofan eru alveg út og suður!! Vonandi að þetta lagist en bless þar til næst
Lífstíll | Breytt 15.12.2008 kl. 14:34 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
5.11.2008 | 01:25
Girðingavinna
Síðastliðinn laugardag fórum við fjölskyldan til Ingu og Simma til að fara yfir girðingar þar sem við ætluðum að setja Lýsu og hryssurnar í stærra stykki. Við komum þangað um hádegið og byrjuðum að fara af stað með Ingu á traktornum á undan okkur. Alltaf notalegt að koma þarna í elskulegheitin hjá þeim hjónum
Það þurfti að setja niður einn hornstaur sem Simmi kom með og var það auðvelt með traktornum. Svo var bara að ganga meðfram girðingunni. Krakkarnir fengu nú alveg víðáttubrjálæði og ruku niður í fjöru að leika og urðum við ekki vör við þau langa stund. Þarna munu hrossin okkar vera næsta sumar og hafa það gott. Alveg kafbeit og stór tjörn sem ekki þornaði í mestu þurrkunum í sumar. En svo er þarna líka drykkjarskál sem hægt er að tengja inn á vatnslögnina ef ske kynni að allt þornaði upp. Við dunduðum okkur þarna mest allan daginn og komum svo inn í kaffi á eftir. Skemmtilegt að vera svona í útivinnu og með duglegum krökkum sem alltaf gátu hjálpað eitthvað
Áður en við fórum inn í kaffi ákváðum við að taka nokkrar myndir af merunum ;o) á meðan birtan var. Perla mín komin uppá einn af hraundröngunum sem koma til með að mynda gott skjól í vetur.
Og Vænting ekki langt frá henni þar sem þær voru ekki alveg búnar að samlagast hinum sem höfðu komið hálfum mánuði áður.
Sáum við þær ekki alveg strax en þegar við gerðum það var alveg eins og þær hefðu stillt sér upp í fjölskyldumyndatöku Fremst liggur Tjörn, brún/grá, Lýsu-og Töfradóttir( Selfossi), fyrir ofan hana Rán, rauðtvístjörnótt, Lukku-og Karradóttir(Neðra-Seli), við hliðina á henni er Gná, jarpvindótta, Deplu-og Trymbilsdóttir(Akurey 1), Gríma, moldótta, kíkir yfir bakið á Gná , Gríma er Gyðju-og Trymbilsdóttir, Silfra, móvindótta, Drottningar-og Brekadóttir( Brúarreykjum), aftast er svo Lýsa okkar, leirljósa, Lóu-Blesu-og Asadóttir(Brimnesi). Fallegt faxið á þeim vindóttu, algjörar ljóskur. Silfra Gná. Gríma með grímuna yfir augun og Rán við hliðina á henni. Og krúttið hún Tjörn, sem virtist vera alveg nývöknuð, hehhe. Eftir kaffið fórum við aftur út og hleyptum þeim yfir í hitt stykkið. Vá hvað þær voru ánægðar þær héldu að nú væru þær gjörsamlega frjálsar og hlupu alveg eins og vitlausar niður allt túnið. Við drifum okkur í bæinn og byrjuðum á hesthúsinu að hleypa út liðinu þar. Erum komin með 7 hross inn og bíðum enn eftir einu henni Gæfu sem er að koma að norðan beint út tamningu. Það verður gaman að kynnast henni aftur og fara í útreiðatúra. Svo bíðum við bara eftir að leigjandinn komi nú inn með sín 2 hross og þá verðum við komin með fullt hús Hafið það sem allra best og vonandi fýkur nú ekki allt í burtu hjá ykkur í þessum ægilega vindi sem er búinn að blása í allt kvöld
Lífstíll | Breytt s.d. kl. 01:35 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
1.11.2008 | 01:14
Hrossafluttningar
Svona inná milli sem ég kynni hrossin okkar var ég að hugsa um að setja inn hér atburði í lífi okkar fjölskyldunnar.
Síðasta mánuð höfum við hjónin verið dugleg í hrossafluttningum. Og er þetta búið að vera svo mikil keyrsla með kerrur aftan í bílnum okkar að kallinn er farinn að segja að um leið og hann setjist uppí bílinn okkar þá haldi hann að kerra sé aftan í bílnum og keyri í samræmi við það. Skilur svo ekkert í að aðrir flauti á hann óspart þegar hann tekur borgarstjórabeygjurnar með enga kerru í eftirdragi!!!Við vorum svo heppin að hafa fundið stað þar sem við getum haft öll okkar hross á sama stað. Þar sem við höfum keypt heyið okkar undanfarin ár, voru þau svo elskuleg hjónin Inga og Simmi að geta tekið við okkur.
Jæja, fluttningarnir í haust hófust á því að þegar að bræðurnir Glófaxi og Völusteinn voru búnir að vera í viku inni hjá okkur í hesthúsinu í smá re-orientation ( svona Stellu í orlofi námskeiði) þá keyrðum við Glófaxa í tamningu við Akranes og Völustein í Ásgarðinn til Ransýjar. Ég var nú ekki að hafa fyrir því að segja Ransýju að við værum á hraðferð þar sem við vorum líka á leiðinni austur að sækja litlu trippin. En þessi elska var búin að hella uppá kaffi og baka vöfflur fyrir stórfjölskylduna og þurftum við þá að taka þetta inn seinna Fyrigefðu Ransý mín, ég veit að þú vildir alveg sýna okkur hvað fjarstýringarnar þínar virkuðu vel á heimilistækin og hvað Busla og Súsý voru orðnar duglegar að framreiða Ég bara næ þessu ekki hjá henni Ransý hvað hún er dugleg í þessu öllu saman. Hún þyrfti sko að halda námskeið fyrir okkur hinar
Jæja og við austur að sækja Lýsu, Þrá og mertryppin 5. Fengum við vin okkar til að aðstoða okkur á sínum fína fluttningabíl til að taka þessar 7. Þrá og Lýsa búin að hafa það gott í Kaldárholti í stykkinu hennar Lilju, www.hrossasott.com Bara feitar og fínar þessar elskulegu maddömur okkar og löbbuðu bara fínt uppá bílinn. Svo fórum við í Kastalabrekku að sækja tryppin, Tjörn, Rán, Grímu, Silfru og Gná. Bara fín og góð aðstaða þarna. Það var búið að smala um morguninn og biðu þær eftir okkur í einni stíunni. Þær voru líka feitar og pattaralegar eftir sumarið og vel hugsað um þær. Svo var bara að kanna hvort þær myndu eftir því að þær væru band- og kerruvanar. Ekki málið, bara flottar þessar elskulegu dömur. Við vorum með þær inni í hesthúsinu í viku til að skerpa aðeins á Stellu aðferðinni, sem virðist hafa dugað vel hingað til
18.10. 2008.
Við keyrðum Lýsu, og mertryppin 5 til Ingu og Simma í stykkið. Þar voru þau hjónin búin að girða minna stykki þar sem við settum þær inn þar sem við áttum eftir að koma með 2-3 önnur sem eiga að ganga úti í vetur. Svo héldum við áfram norður til að sækja 3 önnur sem höfðu verið úti. Við komum í Litluhlíð til Mörtu og Adda um kvöldið. Snemma næsta morgun fórum við að reyna að ná í Mána gamla, hestinn hans pabba. Hann var uppi í fjalli með stóðinu. Hann var auðvitað taminn og átti bara vera hægt að ganga að honum og mýla. Jæja, Addi var komin til hans, búinn að gefa honum brauð og alles og ætlaði svo að koma múlnum á. En, NEI, hann man víst ekki eftir Stellu í orlofi uppeldinu!!! Andskotans!! Þetta kostaði 3 klst í eltingaleik fram og til baka uppí í fjalli!! Og þið vitið að við sem erum sko ekki með ballet-fíguru eða limaburð þá getur þetta sko orðið ansi ÓFYNDIÐ EN að lokum tókst þetta, allt Adda að þakka. Máni kominn í aðhald í gerði Svo var að ná í Væntingu. Bara ekkert mál að mýla hana, hún mundi sko eftir Stellu hehhe. Svo var bara að labba með hana niður í hesthús til Mána. Ja, sko þá fékk ég að muna eftir því að við hlaupum sko ekki eins hratt og hestar, því Vænting ætlaði sko bara að hlaupa þangað með MIG í eftirdragi. ANDSKOTINN sko hún Stella var sko ekki að virka, svo að við hringsóluðum niður í rétt og líðanin á frúnni var sko eins og hún hefði teygað 7 skot af von Baron appelcorn !!!! Og svo uppá kerru með þetta fja....s lið. Svo flýttum við okkur að þakka fyrir okkur hjá húsráðendum til að ná í bæinn um kvöldið. Svo var brunað af stað á Tjarnir þar sem við þurftum að sækja Perlu litlu. En Perla var bara orðin rosa stórt tveggja vetra trippi og bara ekkert búið að eiga við hana. Við auðvitað beittum Stellu óspart og tókst í lokin að mýla hana og binda svo utan á taminn hest og svo uppá kerru. Þökkum kærlega fyrir okkur Kjartan og Sigurlaug alltaf gaman að koma til ykkar. Nú svo var lagt í´ann suður heiðar. Bara brjálað veður eða þannig mín skíthrædd í bíl þegar rok er og smá hálka. En elsku kallinn minn rosa góður bílstjóri og NÚNA með KERRU aftan í bílnum bara algjör snilli.
Ætlunin var að hafa þessi 3 inni með Þrá og setja þau svo aftur út hjá Ingu og Simma. En Máni kom svo vel út úr skoðuninni hjá Björgvini dýral að hann verður áfram inni í vetur til brúkunar. Ég ætlaði sko að nota Stellu vel á Perlu svo að hún yrði nú bandvön áður en hún færi út ásamt Væntingu til hinna hryssnanna. Vikan varð nú samt að tveimur þar sem Perla var nú ekki alveg að gefa sig. En þegar leynivopnið hann Ármann Stínumaður mætti á staðinn og teymdi Perlu tvisvar að þá gaf hún sig. Enda Stella búin að hreiðra um sig og svo mætti Ármann með sitt leynivopn og allt small saman. Perla bara orðin TAMIN
31.10. 2008
Í dag keyrðum við svo Perlu og Væntingu í stykkið hjá hinum 6 hryssunum. Æðislegt að sjá svona marga liti saman komna. Leirljóst, brúnt/grátt, rauðtvístjörnótt, moldótt, móvindótt, jarpvindótt, rauðskjótt og gráskjótt. Svo gæti nú Lýsa komið með moldótt á næsta ári þar sem hún er með fyl undan Forseta.
Enn héldum við áfram að sækja reiðhrossin austur fyrir fjall á Baugsstaði hjá Gumma, bróður Lilju, og Sjöfn konu hans. Þarna voru þeir fjórir, Glæsir, Rex, Tangó og Nökkvi. Við ákváðum að taka Tangó og Nökkva í fyrsta holli í tveggja hesta kerrunni þar sem þeir gætu reynst erfiðari en hinir. Ekki málið að ná þeim tveimur og beint uppá kerru Brunað í bæinn og inní hesthús með þá og svo austur aftur að sækja hina tvo. Urrr afhverju láta tamdir hestar svona, ekki bara þeir heldur Máni líka fyrir norðan. Jújú við náðum þeim alveg en báðir ákváðu þeir að þeir ætluðu BARA með framfæturnar uppá kerru!!!! Jæja loksins tókst þetta og brunað í bæinn með þá líka. Svo áttum við bara eftir að sækja Svörtu-Spörtu uppí Stardal. Hringdum í Helgu Skowronski http://www.123.is/helgadalshestar/default.aspx?page=blog og spurðum hvort hún vildi bara ekki nýta sér ferðina hjá okkur og ná í sína hesta líka fyrst við værum með kerru hvort sem er. Jújú ekki málið og hún bara, þessi elska, kom labbandi á móti okkur vafin í neonkaðli eins og lítið jólatré og með brauðpokana dinglandi utan á sér, svo að við sæjum hana nú áræðanlega í myrkrinu!!!! Svo að við ákváðum að reyna að snúa við á þessu smá plássi. Helga kemur hressileg inní bíl og segir að það sé ekkert mál að snúa hér við því stórar rútur geri það ALLTAF. Ég búin að bjóðast til að fara út og opna hlið þarna til að fá meira pláss á veginum, en NEI, þarna VARÐ kallinn að snúa við hvað sem tautaði og raulaði Svo héldum við áfram. Fórum úr bílnum við Stardal, settum upp kaðalinn góða, og kölluðum í hrossin í myrkri og þoku. Og hvað haldiði??? Þessar elskur Snerill fyrstur, svo Gríma og svo Svarta-Sparta komu bara hlaupandi og við mýldum þau. Uppá kerru með Sneril og Grímu og ég beið með Svörtuna mína á meðan þau fóru fóru uppí Helgadal. Svo kom kallinn til baka og Svartan uppá kerru eins og hún hafi ekkert annað gert um æfina. Við brunuðum uppí hesthús þar sem öll hersingin var fegin að fá kvöldgjöfina og vera inni í slagviðrinu Knús til ykkar
Lífstíll | Breytt s.d. kl. 11:20 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
29.10.2008 | 22:47
Fjölskyldan í hestasporti ;o)
Jæja, nú lætur maður loksins verða af því að blogga um áhugamál fjölskyldunnar Bara frábært að hafa áhugamál sem öll fjölskyldan getur tekið þátt í. Meðan krakkarnir voru litlir vorum við hjónin bara tvö í útreiðatúrum eða með öðrum eldri fjölskyldumeðlimum. Nú loksins eru þau ,,litlu'' orðin nógu gömul til að fara í útreiðatúr með ,,gömlu'' og til hestar handa þeim. Eigum við orðið slatta af hestum en flest allt er þetta ungt og ótamið, en erum við þó með 4 reiðhesta sem við eigum sjálf. Svo fer nú brátt að bætast við þegar núna 2 önnur fara að koma úr tamningu. Þá er hægt að fara smám saman í lengri ferðir.
Hestamennskan byrjaði með einni hryssu, veturgamla sem ég keypti af bóndanum þar sem ég var í sveit. Heitir hún Þrá. Þegar hún kom í bæinn 2ja vetra kom laumufarþegi með henni sem hún kastar vorið 1990. Þarf varla að taka það fram að þetta kom ánægjulega á óvart þó svo að merin væri svona ung. Þessi hestur fékk nafnið Snúður og var víst geldur í karinu og var það í fyrsta skipti sem ég hef heyrt að það sé gert. Hann Snúður reyndist uppátækjasamur með meiru alveg óforbetranlegur klárhestur með BROKKI. Þessi hestur komst allt, undir girðingar, lærði að opna hurðir og heilsa en alltaf var þetta elsku besti Snússinn okkar sem allir gátu riðið, bæði fullorðnir og börn og aldrei datt honum í hug að gera annað en hann var beðinn um. Ef maður reið eftir götu og beygja var á henni, datt honum ekki í hug að beygja nema ef hann var beðinn um það Og ef maður gleymdi að segja fólki frá þessu gat það orðið agalega reitt þegar það endaði svo inn í kjarri og enn reiðara varð það þegar maður svo sagði: Bíddu, gleymdirðu að beygja hestinum??? Þessi elskulegi hestur var felldur í ágúst 2007 vegna hrossasóttar 17 vetra og alveg óbilaður og þjónaði sínu hlutverki vel á meðan hann var með okkur. Hans er enn sárt saknað en núna líður honum vel. Þetta er síðasta myndin sem tekin var af honum og sést vel að ekki líður honum vel. Þessi hestur var alltaf glaður og kom alltaf fyrstur af hrossunum okkar til að heilsa okkur þegar við heimsóttum hann í sumarhagann.
Ætlum ekki að hafa þetta lengra núna en við höldum áfram að kynna hrossin okkar og tengja þau í myndaalbúmi. Hafið það sem allra best á þessum síðustu og verstu og verið góð við hvert annað
Lífstíll | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Um bloggið
Hestasport
Tenglar
Mínir tenglar
- Glófaxi frá Kópavogi Stóðhesturinn okkar
- Ransý í Ásgarði Amma Glófaxa og Völusteins
- Helga Skowronski Söðlasmiður og vinkona
- Lilja vinkona skemmtilegt blogg
- Kolla í Mánaskál Skemmtilegt blogg
- Maríanna á Stórhól Skemmtilegt blogg
- Jóhanna Kristín Leigjandinn í hesthúsinu ;o)
- Valgerður á Hrauni Skemmtilegt blogg
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.11.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku:
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku:
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar