25.5.2009 | 14:39
Fullt af fréttum ;o)
Jahá, maður hefur ekki verið duglegasti bloggarinn undanfarið enda nóg að gera á stóru heimili.
Þá eru það helstu fréttirnar frá því síðast:
Í byrjun apríl fórum við sem oft áður að sækja heyrúllur fyrir hrossin okkar. Notuðum við tækifærið og skoðuðum litla stóðið okkar í leiðinni. Komu þær allar til okkar nema ein. Það var hún Tjörn okkar Töfradóttir frá Selfossi. Stóð hún bara og horfði dreyminn út fjörðinn og sýndi okkur enga athygli. Það fannst okkur alls ekki nógu gott og fórum að skoða hana nánar. Það varð úr að við ákváðum að fara með hana til Björgvins dýralæknis í bænum.
Ekki tókst okkur að fá strax tíma hjá honum en Lilja vinkona í Gusti var okkur góð og reddaði plássi fyrir hana þá vikuna. Eftir skoðunina staðhæfði Björgvin að hún væri fylfull þannig að nú eigum við von á öðru folaldi, soldið óvænt en vonandi fer allt vel.
Þar sem fylgjast þarf með henni bauðst Helga vinkona til að taka hana til sín og fylgjast með henni. Í tenglunum hér á síðunni er hægt að fara inná síðu Helgu. Skemmtilegt blogg þar og eru þrjár hryssur af fjórum búin að kasta flottum folöldum. Nú bíður maður bara í start holunum að fara taka myndir af Tjörn og folaldi.
Næst var það að hún Þrá okkar gamla heltist í vetur og verður ekki notuð meira til reiðar og þar með missir heimasætan af sínum aðalreiðhesti. Við fórum með hana út í byrjun mai til Lýsu og hinna tryppanna. Gef henni sumarið og sjáum við svo til hvernig hún kemur undan sumri og hvort hún geti gengið úti einn vetur.
Svona hryssur þyrftu sko allir að eiga. Ég lærði mikið af henni og svo einnig börnin mín og aðrir fjölskyldumeðlimir sem kynntust sinni hestamennsku í gegn um hana. Þæg, traust og hélt vel áfram og hver sem er gat stjórnað henni. Þrá var mitt fyrsta hross og á alveg sérstaklega mikið í mér.
Verst að hafa ekki getað fengið annað folald undan henni þar sem hún reyndist vera geld en eitt fengum við þó og það var hann Snússi okkar sem ég hef bloggað um áður.
Hann Völusteinn annar stóðhesturinn í eigu fjölskyldunnar er kominn í hesthúsahverfið hjá okkur. Var ákveðið að byrja aðeins að frumtemja hann áður en hann fer norður í merar.
Tamningarmaðurinn er mjög ánægður með hann, áhugasamur og allur gangur laus. Á eftir að setja myndir og fréttir af honum á Glófaxa síðuna
Svo fer að koma að því að hún Lýsa okkar kasti fylinu undan Forseta frá Vorsabæ, hlökkum bara til.
Ég ætla að geyma síðustu fréttina fyrir næsta blogg en óvænt bættist við tryppatöluna hjá fjölskyldunni. En segi betur frá því í næsta bloggi og myndir með
Um bloggið
Hestasport
Tenglar
Mínir tenglar
- Glófaxi frá Kópavogi Stóðhesturinn okkar
- Ransý í Ásgarði Amma Glófaxa og Völusteins
- Helga Skowronski Söðlasmiður og vinkona
- Lilja vinkona skemmtilegt blogg
- Kolla í Mánaskál Skemmtilegt blogg
- Maríanna á Stórhól Skemmtilegt blogg
- Jóhanna Kristín Leigjandinn í hesthúsinu ;o)
- Valgerður á Hrauni Skemmtilegt blogg
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.11.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku:
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku:
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Mikið var! hehe! Flott að það kom loksins blogg frá ykkur. Ég vona að Tjörn ykkar gangi vel á lokasprettinum. Leitt að heyra með Þrá, ég veit sjálf hvað það er erfitt að missa svona uppáhalds hesta.
Ég hlakka til að sjá næstu færslu.. hvað voruð þið núna að kaupa! hehe
Kolla (IP-tala skráð) 27.5.2009 kl. 22:15
Já mikið var að maður komst í gang aftur
Já það er von að þú spyrjir hvað við vorum að kaupa þetta ruglaða fólk hérna má ekki sjá eitthvað krúttlegt og þá bara er maður komin í hann krappann
Fjölskyldan, 28.5.2009 kl. 23:01
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.