Haustbeit, folöld og tryppi tekin á hús

Jæja, loksins hefur maður haft tíma til að blogga. Veikindi búin að vera hér á bæ eins og kannski á fleiri heimilum Undecided

 

Sunnudaginn 10. október bað hún Helga mig um aðstoð við að fara með hrossin hennar í haustbeit uppí Stardal. Það var auðsótt mál og var ég þá snögg að biðja hana um að koma með okkur að sækja folöldin og koma þeim Væntingu og Perlu á kerru. Það þarf að byrja tamningu á þeim báðum Joyful enda orðnar stórar og þroskaðar.

 

IMG_1556

 

Á leið uppí Stardal. Tók langan tíma að fá Sneril til að standa kyrran til að taka þessa mynd, þar sem honum líkaði ekki að vera langt á eftir hinum LoL

 

IMG_1544

 

Skrýtin mynd Sideways minnir mann á fornar myndir úr Íslendingasögum Wink en þetta er frúin á Snerli !!

 

IMG_1545

 

Og Helga á Esju og teymir Sylgju og Grímu. Folöldin og Salvör hlaupa á eftir, sú gamla alveg með á hreinu hvert förinni væri heitið Smile

 

Svo var þeim hleypt beint í hausthagann þar sem önnur hross voru fyrir og tóku þeim bara vel.

 

Svo var ferðinni heitið í Rauðanes að sækja folöldin og merarnar tvær. Það myndi sko ekki veita af liðsstyrk frá Helgu til að koma Perlu á kerru Woundering enda lítið búið að ná því að spekja hana.

En svo þegar maður á von á því versta þá gengur allt eins og í lygasögu enda hafði Helga orð á því að hún hefði ekkert þurft að koma með Halo 

En allt komst þetta uppá kerru og bara æðislegt að hafa félagsskap af Helgu. Engar myndir voru teknar þar sem allir voru svo uppteknir að taka nú almennilega á þessu en svo þegar það þurfti ekki þá auðvitað gleymdist myndatakan FootinMouth

 

En hér koma svo nokkrar myndir þegar við vorum komin í bæinn

 

IMG_1557

 

Kanslari, Lýsu og Forsetason ásamt einum eigandanum Smile  bara meðfærilegur foli í alla staði svona við fyrstu kynni.

 

IMG_1566

 

Toppur Tjarnarson frekar lítill ennþá og fyndið að sami stærðarmunur er á honum og frænda hans Kanslara, eins og þegar þeir fæddust Smile

 

Ætlaði að setja inn mynd af Perlu og Væntingu en síðan vill ekki taka við henni Pinch

Farið þið nú vel með ykkur í þessari flensutíð.


Stóðréttir

Síðustu helgi brá fjölskyldan sér norður yfir heiðar í Stóðréttir í Víðidalstungu.

Það var sko öðruvísi um að litast en hér í borginni

 

Picture 053

 

Já, það var sko kallt ef maður var ekki vel klæddur Wink

 

Hér eru hrossin að koma inn í Almenninginn

 

Picture 013

 

Veðrið hafði ekki verið gott daginn áður þegar smalað var. Þá var mikil snjókoma og hvasst svo að um þriðjung hrossanna vantaði enn.

Við tókum þó nokkrar myndir af folöldunum frá Stórhól sem eru undan bræðrunum Glófaxa og Völusteini.

 

Picture 009

 

Hér er ein hryssa mjög spes á litin undan Völusteini. Fleiri myndir af folöldunum er inná linknum Glófaxi frá Kópavogi og ef ykkur líst á er um að gera að spjalla við hana Maríönnu á Stórhól og fara að versla þar sem enn eru nokkur folöld óseld.

 

Eigendur Glófaxa og Völusteins stóðust heldur ekki freistinguna við að kaupa eitt folald.  Er það merfolald undan Völusteini og Birtu frá Tjörnum. Birtu þekkjum við fjölskyldan mjög vel enda var hún í okkar eigu áður og þar sem hún eignaðist merfolald sem okkur leist á var ekkert því til fyrirstöðu að eignast hana.

 

Picture 015

 

Ekki er komið nafn á dömuna en það kemur fljótlega Wink

 

Má til með að bæta einni mynd inná líka

 

Picture 029

 

Ein greinilega að leggja áherslu á orð sín ,, Ræktunarstefnan skýr og með eldmóð í hjarta,, LoL

Greinilega kemur þessi lína einhverstaðar fram, hmmm, þó svo að þetta hafi nú ekki verið orðin sem notuð voru þarna Wink

 

Jæja þar til næst Kissing

 

 

 

 

 


Lýsa sótt á Gýgjarhól

Sunnudaginn 6. sept fórum við norður á Gýgjahól til að sækja hana Lýsu okkar sem fór undir hann Arnodd Þóroddsson frá Auðholtshjáleigu. Mjög góð aðstaða þarna hjá þeim Jóni Olgeiri og Gýgju og það tók enga stund að koma mæðginum uppá kerru.

Það er auðvitað vonast eftir leirljósu merfolaldi að ári Wink en sá sem leigði Lýsu af okkur sagði að ef hann fengi leirljóst þá færi hann heljarstökk, en ef hann fengi leirljóst merfolald þá færi hann tvöfalt heljarstökk!! Við munum auðvitað sannreyna þetta þegar nær dregur Cool

 

IMG_4606

 

Öll mertryppin að heilsa uppá Lýsu og strákinn hennar.

 

IMG_1505´

 

Skemmtilegt að sjá hvað Tjörn hefur gránað mikið í sumar og svo er eins og hún sé með ljós grátt teppi um sig miðja Tounge    kannski komist meiri sól á bumbuna hennar áður en hún átti Topp LoL

En Toppur er líka að flýta sér að grána

 

IMG_1503

 

Vænting og Perla hafa tekið að sér að vera barnapíur fyrir Tjörn og ef yngri tryppin ætla eitthvað að vesenast í honum þá eiga þau ekki von á góðu frá þessum tveimur Wink

 

IMG_4613

 

Systkinin að skokka saman Kissing

 

IMG_4626

 

Einn allt í einu að taka eftir því að mamma hans er komin langt á undan honum Grin og þá best að hraða sér.

 

IMG_4617

 

Lýsa að nota tækifærið til að renna af stað á undan hinum.

Nú fer að koma að því að taka Væntingu og Perlu inn í smá skólun. Perla þarf að trimmast aðeins til þar sem að hún er orðin virkilega feit. Það er bara örugglega gott fyrir hana svo að hún fitni nú ekki allt of mikið Shocking

Kvittið nú endilega í gestabókina eða fyrir neðan færsluna.

 

 

 

 


Laugardagur 22. Ágúst 2009

Ákveðið var að hittast í Rauðanesi 1 og koma öllum í bíla til að keyra að Valbjarnarvöllum. Í dag átti að ríða um 35 km inn að Seljalandi í Dölum. Sumir voru komnir fyrr og búið var að koma öllum hrossum í eitt hornið á girðingunni svo að allir gátu...

Hestaferð í Seljaland

Föstudaginn 21. ágúst 2009 var ákveðið að ríða inn að Seljalandi í Dölum. Þeir sem fóru með voru: Tryggvi Lone Ranger og Nonni ( sem báðir enduðu með ný nöfn eftir þessa ferð ) Vera, Sigurjón Foreman, Halldóra, Bjössi, Rakel María, Rebekka, Rakel Lilja,...

Kaldármelar - Rauðanes

Ætla aðeins að bæta inn nokkrum flottum myndum af því þegar við riðum heim frá Kaldármelum Fjóla og Bjössi í fararbroddi Fyrsta áin sem farin var yfir. Þessi leið er bara ótrúlega falleg og er alveg víst að hana á ég eftir að fara aftur Svona...

Löngufjörur

Föstudagurinn 3. júlí. Eftir vinnu vorum við búin að taka allt til svo að ekkert var annað en að renna vestur á Mýrar. Þegar þangað var komið voru sko endurfundir í lagi síðan úr sleppiferðinni þar sem við höfðum ekki verið á Fimmtudagskvöldinu og hitt...

Kaldármelar 2. júlí

Fimmtudaginn 2. júlí riðu af stað úr Rauðanesi, Fjóla, Inga Lóa, Bjössi, Rebekka og Tryggvi á Kaldármela. Þar sem mörgum langaði að taka þátt í hópreiðinni sem yrði á Föstudagskvöldinu á Löngufjörum var ákveðið að þeir sem gætu myndu ríða þetta kvöld af...

Frumburður fæddur

Viljum óska Halldóru og Sigurjóni til hamingju með frumburðinn sem fæddist í gær þann 6. júlí Strákurinn er 18 merkur og 55 sentimetra, bara stór Hlökkum til að sjá hann og kveðja frá okkur öllum. Tók mér bessaleyfi og kippti myndinni af flikrinu hjá...

NN frá Kópavogi

Þann 19. júní 2009 leit hann dagsins ljós hann NN frá Kópavogi rauðstjörnóttur. Lýsan okkar alltaf söm við sig kastar á milli 15. - 20. júní. Samt var maður nú búin að gera sér smá vonir að hún stæði nú með folaldið hjá sér á síðsta degi sleppitúrsins,...

Næsta síða »

Um bloggið

Hestasport

Höfundur

Fjölskyldan
Fjölskyldan
Áhugamálið
Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Nýjustu myndir

  • IMG_1566
  • IMG_1557
  • IMG_1545
  • IMG_1544
  • IMG_1556

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (19.4.): 1
  • Sl. sólarhring: 3
  • Sl. viku: 16
  • Frá upphafi: 566

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 15
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband